107739 1
107739 2
107739 3
107739 4
107739 5
107739 6
107739 7
107739 1
107739 2
107739 3
107739 4
107739 5
107739 6
107739 7

Upplýsingar um vöru

Kælir CKS4185V

Stílhrein hönnun

Þessi frístandandi Elvita kælir er 185,5 cm hár og er í orkuflokki A++. Skápurinn er sérstaklega stílhreinn og með skjá og fallegri höldu. Hægt að velja hvort hurð opnist til vinstri eða hægri þannig að það henti þínu eldhúsi sem best.
Kælirinn rúmar allt að 360 lítra og því auðvelt að hafa stjórn á innihaldinu. Þú getur raðað í fjórar glerhillur og tvær gegnsæjar skúffur eða í hillurnar í hurðinni. Orkusparandi LED perur efst í skápnum gefa þér góða yfirsýn yfir innihaldið í skápnum.

X-tra Cool skúffa

Hin svokallaða X-tra Cool skúffa er 2-4 gráðum kaldari en aðrir staðir í kælinum. Hún er því fullkomin fyrir viðkvæm matvæli á borð við kjöt og fisk.

Grænmetisskúffa með rakastjórnun

Neðri skúffan er fullkomin fyrir ávexti og grænmeti, þökk sé rakastjórnuninni. Þú getur stillt rakastjórnunina með þægilegum sleða. Grænmetisskúffan er á útdraganlegum brautum.

Hillur í hurð og flöskurekki

Í hurðinni eru fimm hillur. Ein þeirra er með loki og því fullkomin til að geyma matvæli á borð við egg. Önnur hilla er með sérstakar festingar fyrir flöskur til að halda þeim á sínum stað.

Athugaðu hitastigið og snöggkældu

Það er auðvelt að stilla hitastigið á utanáliggjandi skjánum. Með Super Cool virkninni nær skápurinn að kæla matvælin hraðar og því helst maturinn ferskur lengur. Frábært þegar það er nýbúið að versla inn fyrir vikuna. Það slökknar sjálfkrafa á Super Cool virkninni eftir 6 tíma og kælirinn fer aftur í hefðbundnar stillingar.

Fjarverustilling

Fjarverustillingin takmarkar orkunotkun, sem er fullkomið þegar þú ert ekki heima hjá þér og þarft ekki að nota kæliskápinn eins mikið til lengri tíma. Hitastig kælisins er stillt á 15°C.

Viðvaranir

Viðvörun hljómar ef hurðirnar eru skildar eftir opnar í meira en 2 mínútur eða ef hitastigið hækkar of mikið.

Þessi skápur er með 5 ára ábyrgð frá Elvita.

Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar fyrir Elvita CKS4185V
Kæli- eða frystiskápaflokkur 1 Kæliskápur með eitt eða fleiri rými fyrir ferskvörur
Orkuflokkur A++
Árleg orkunotkun kælis/frystis 130 kWh/árlega
Kæliefni R600a
Rúmtak kælis 360 lítrar
Loftslagsflokkun SN-N-ST-T
Hljóðstyrkur 40 dBa
Breidd 595 mm
Dýpt 662 mm
Hæð 1855 mm
Lýsing LED
Frystihólf Nei
Skjár
Innbyggður Nei
Sjálfvirk afþíðing
Litur Hvítur
Þyngd 74 kg
Hurðarviðvörun
Lýsing
Flöskuhilla
Grænmetisskúffa
Ferskvörusvæði Nei
Hurðarlamir Hægra megin
Stillanlegir fætur
Stillanleg opnun
Hjól að aftan
Vifta fyrir lofthringrás

Orkumerkingar